Um Duus safnahús

Duus Safnahús eru safna- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar og hýsa aðal sýningarsali

Byggðasafns Reykjanesbæjar og

Listasafns Reykjanesbæjar. Bæði söfnin hafa hlotið viðurkenningu Safnaráðs. Þar er einnig  Gestastofa Reykjaness jarðvangs  og salur fyrir blandaða menningarviðburði. 

Fjölbreytt menningarstarf er rekið í þessum gömlu verslunar- og fiskvinnsluhúsum. Saga þeirra nær aftur á 19. öld en elsta húsið, Bryggjuhúsið, var reist árið 1877 af Duus-verslun. Byggingarsaga húsalengjunnar er því vel yfir aldarlöng. Byggt var við húsin eftir þörfum hverju sinni. Á fyrri hluta 20. aldar hætti verslunin rekstri og voru húsin þá notuð í tengslum við útgerð. Undir lok síðustu aldar keypti sveitarfélagið húsin fyrir safna- og menningarstarf. Nú hefur öll lengjan verið endurbyggð en því verki lauk árið 2014. 

Duus Safnahús eru í hjarta gamla bæjarins. Fyrir framan þau má enn sjá leifar af Keflavíkurbænum og við hringtorgið næst húsunum var Stokkavörin, aðal lendingarstaður báta fram á 19. öld og eitthvað lengur. Smábátahöfnin í Gróf er í næsta nágrenni ásamt Skessunni í hellinum. Strandleiðin, 10 km steyptur göngustígur meðfram sjónum, liggur neðan við húsin og nær inn að Vogastapa í Innri-Njarðvík. Meðfram leiðinni eru upplýsingaskilti um sögu og náttúrufar svæðisins. 

Um Duus safnahús

Í Duus safnahúsum er 8 sýningasalir

Útleiga

Hægt er að leigja einn sal í Duus safnahúsum, Bíósal, fyrir fundi, tónleika eða aðra menningartengda viðburði. Aðeins er hægt að leigja salinn utan opnunartíma Duus safnahúsa, eða frá kl. 9-12 og 17-22 alla daga nema mánudaga. 


Salurinn er hvorki leigður út til sýningahalds né einkasamkvæma.  Í salnum er skjávarpi og sýningartjald. 


Duus safnahús útvega ekki veitingar eða borðbúnað og ekki er aðstaða til matargerðar eða geymslu á veitingum í húsunum. Heimilt er að panta veitingar og bjóða upp á í salnum. Kaffi og te er innifalið í leigugjaldi.


Salurinn tekur um 70 manns í sæti í svokallaða bíóuppröðun en einnig er hægt að sitja við borð í salnum og fer þá gestafjöldi eftir uppröðun. Salurinn tekur um 100 manns standandi. Salurinn er 130m2, 13m á lengd og 10m á breidd. 


Til að fá nánari upplýsingar eða bóka salinn, vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected].

Starfsfólk

Ellen Agata Jónsdóttir



Móttöku- og kynningarfulltrúi [email protected]

Lilja Dögg Schram Magnúsdóttir


Safnfulltrúi [email protected]

Justine Andrea Unkel

Safnfulltrúi

[email protected]

Helena Rós Bjarnveigardóttir


Safnfulltrúi

Dagrún Ragnarsdóttir


Safnfulltrúi