Opnunartími og verð 

Sumar opnunartími

Þri - Fös: 10:00 - 17:00
Lau - Sun 12:00 - 17:00

Mánudaga: Lokað

Almennur opnunartími 

Þri - Sun: 12:00 - 17:00 

Mánudaga: Lokað 

Aðgangseyrir 

Fullorðnir: 1.560 kr.

Ellilífeyrisþegar & námsmenn: 1.250 kr. 
Ókeypirs aðgangur: Yngri en 18 ára, öryrkjar, félagar ICOM, SÍM, FÍSOS & FÍM.

Hópaverð

10 manns eða fl.
1.250 kr. hver gestur

20 manns eða fl.
1.040 kr. hver gestur

Aðgengi

Við leggjum okkur fram um að tryggja aðgengi fyrir alla að sýningum húsanna. 


Inngangur í Duus safnahús er frá Duusgötu. Þar er rennihurð sem opnast sjálfkrafa og er aðgengi án þröskulda. Afgreiðslan er á vinstri hönd þegar komið er inn. 


Bílastæði eru gegnt Duus safnahúsum en merkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru til móts við inngang. 


Í húsunum er aðgengi fyrir hjólastóla tryggt í öllum rýmum.  Athugið þó að þar sem Bryggjuhúsið er gamalt og að miklu leyti upprunalegt að innan er gólf á efri hæðum ójafnt. Pallalyfta er í Bryggjuhúsi sem tryggir aðgengi á allar hæðir hússins.
Á jarðhæð Bryggjuhússins er salerni sem uppfyllir algilda hönnun.
 


Einn hjólastóll er í húsinu til afnota fyrir gesti. 


Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk safnsins sé þörf á frekari upplýsingum um aðgengi. 

Hópar

Við tökum vel á móti hópum, sem geta annaðhvort skoðað sýningarnar sjálfstætt eða fengið leiðsögn. Í boði er stutt kynning án aukakostnaðar. Greiða þarf aðgangseyri samkvæmt gjaldskrá, sem miðast við fjölda:

  • Fleiri en 10 manns: 1.250 kr. á hvern gest
  • Fleiri en 20 manns: 1.040 kr. á hvern gest

Einnig er hægt að bóka sérfræðileiðsögn um sýningar Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar. Bóka þarf með fyrirvara og greiða bæði aðgang og leiðsögn samkvæmt gjaldskrá.

Bóka heimsókn

Skólahópar

Með heimsókn gefst nemendum einstakt tækifæri til að kynnast listum, sögu og náttúrufari svæðisins. Markmið með heimsókn í Duus safnahús er að hvetja nemendur til umhugsunar – að sjá, skoða, uppgötva og tjá sig.  


Skólahópar eru velkomnir í heimsókn þriðjudag - föstudaga milli kl. 9–15. Heimsóknir eru skólum að kostnaðarlausu. Mælt er með að hópar séu ekki stærri en 25 nemendur, svo allir fái sem mest út úr heimsókninni. Stærri hópar eru því beðnir um að skipta sér í tvo eða fleiri smærri hópa.

Bóka heimsókn

Í næsta nágrenni

Bryggjuhúsið, elsta bygging í húsalengju Duus safnahúsa, er friðlýst og skapar ásamt elstu húsum bæjarins heillandi götumynd. Þau eru í næsta nágrenni við fyrsta þéttbýliskjarnann í Keflavík, falda perlu sem gaman er að ganga um. Við Hafnargötu, skammt frá Duus safnahúsum, eru verslanir og veitingastaðir þar sem hægt er að gera sér glaðan dag. Skessan í hellinum við smábátahöfnina í Gróf tekur fagnandi á móti gestum og eftir strandlengjunni liggur 10km lög gönguleið með skemmtilegum upplýsingaspjöldum og fallegri sjávarsýn. 


Á Reykjanesskaga eru fjölmargir áhugaverðir áfangastaðir og mikil náttúrufegurð. Má þar sem dæmi nefna Bláa lónið, Brimketil, Gunnuhver, Reykjanesvita, brúna á milli heimsálfa. 


Upplýsingar um viðburði, afþreyingu, veitingastaði og margt fleira er að finna á upplýsingavef Reykjanesbæjar. 


www.visitreykjanesbaer.is