
Skáldasuð ljóða – og listahátíð í Reykjanesbæ er haldin 9.-26. aprí. Hátíðin fagnar myndlist og ljóðlist og haldnir hafa verið hefðbundnir ljóðaupplestrar í Bíósal Duushúsa og í Bókasafni Reykjanesbæjar. Ljóð eru út um allan bæ í matvörubúðum, á göngustígum og í sundlaugum einnig er sýning í Bíósal Duushúsa en fimmtudag 23. apríl á sumardaginn fyrsta verður listamannaspjall og leiðsögn kl.15. Gleðilegt sumar.

Nú er síðasta vika sýningar Héðan þangað þaðan hingað eftir Tuma Magnússon, sem lýkur 19. apríl. Á síðasta sýningardegi, sunnudaginn 19. apríl, verður Tumi með listamannaspjall í safninu sem hefst klukkan 14:00. Sýningin Héðan þangað þaðan hingað er sýningarstýrð af Gavin Morrison og kynnir verk myndlistarmannsins Tuma Magnússonar. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan. Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í sýningnunni. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun. Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.

Bíókvöld Kvennakórs Suðurnesja verða haldin miðvikudaginn 15. apríl og sunnudaginn 19. apríl í Bíósal Duus safnahúsa. Kórinn ætlar þó ekki að sýna bíómyndir heldur munu kórkonur flytja tónlist úr þekktum kvikmyndum á vortónleikum sínum þetta árið. Dagskráin er fjölbreytt og inniheldur gleði, hlátur og grátur eins og gerist í góðum bíómyndum. Má þar nefna kvikmyndir á borð við Harry Potter, Frozen, Bohemian Rhapsody, Shrek, The Greatest Showman, Karlakórinn Heklu og svo mætti lengi telja. Kórkonur hafa notið þess að æfa þetta skemmtilega prógramm í vetur og eru spenntar að deila því með tónleikagestum. Forsala miða er á Facebook-síðu kórsins og hjá kórkonum. Einnig verður miðasala við innganginn. Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þ. Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður F. Bogadóttir. Auk þess fær kórinn til liðs við sig á tónleikunum þá Jón Árna Benediktsson bassaleikara, Sigurð B. Ólafsson gítarleikara og Magnús Má Newman trommuleikara.
Komdu með fjölskylduna og taktu þátt í Lifandi laugardögum – skemmtilegri röð listasmiðja, vinnusmiðja, sögustunda eða annarra viðburða þar sem börn og fullorðnir skapa saman og njóta notalegrar stemningar í Duus safnahúsum. Smiðjurnar eru haldnar á völdum laugardögum frá kl. 13:00 - 14:00 og henta öllum aldri. Ókeypis aðgangur.

Við bjóðum ykkur velkomin á sýningu Tuma Magnússonar, Héðan þangað þaðan hingað, laugardaginn 17. janúar kl. 14:00 - 16:00 í Listasafni Reykjanesbæjar. Tumi Magnússon (f. 1957) býr og starfar í Kaupmannahöfn og Reykjavík. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan. Á sýningunni má sjá lykilverkið Kaffi og hland (1998–99), röð átta málverka sem sýna örfín litbrigði frá kaffibrúnum til pissuguls og fanga tímann sem kyrra, en um leið óstöðuga heild. Einnig eru sýnd nýrri vídeó- og hljóðverk á borð við Tímaréttingarlaglínur (2021–25) og Almenningssamgöngur (2020–25), þar sem einfaldar athafnir og ferðir eru samstilltar í taktfastar, tónrænar samsetningar. Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í verkum Tuma. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun. Gavin Morrison er sýningarstjóri.

Ævintýraleg jólasöguspjöld, föndur og óskalistasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur. Í desember bjóða Duus safnhús uppá notalega jólasamverustund, hægt er að föndra jólaskraut, skrifað óskalista til jólasveinanna og lesið um jólahefðir Duus húsa fyrr á tíðum. Henta öllum aldurshópum og góða leið til að kynnast jólum liðinna tíma og taka þátt í skapandi samveru.

Samtal um sýningu Áka Granz – með Karveli Granz Sunnudaginn 16. nóvember kl. 14:00 býður Listasafn Reykjanesbæjar til áhugaverðs viðburðar þar sem Karvel Granz segir frá sýningu föður síns, Áka Granz, og veitir gestum einstaka innsýn í hugarheim listamannsins. Þetta er kærkomið tækifæri til að kynnast verkum Áka nánar og heyra sögur úr lífi og listsköpun hans frá syni hans sjálfum. Aðgangur ókeypis – öll velkomin! Komdu og njóttu hlýlegs samtals um list og líf.
