
Við bjóðum ykkur velkomin á sýningu Tuma Magnússonar, Héðan þangað þaðan hingað, laugardaginn 17. janúar kl. 14:00 - 16:00 í Listasafni Reykjanesbæjar. Tumi Magnússon (f. 1957) býr og starfar í Kaupmannahöfn og Reykjavík. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan. Á sýningunni má sjá lykilverkið Kaffi og hland (1998–99), röð átta málverka sem sýna örfín litbrigði frá kaffibrúnum til pissuguls og fanga tímann sem kyrra, en um leið óstöðuga heild. Einnig eru sýnd nýrri vídeó- og hljóðverk á borð við Tímaréttingarlaglínur (2021–25) og Almenningssamgöngur (2020–25), þar sem einfaldar athafnir og ferðir eru samstilltar í taktfastar, tónrænar samsetningar. Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í verkum Tuma. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun. Gavin Morrison er sýningarstjóri.

23.12 Þorláksmessa 12:00 - 17:00 24.12 Aðfangadagur LOKAÐ 25.12 Jóladagur LOKAÐ 26.12 Annar í jólum LOKAÐ 27.12 Laugardagur 12:00 - 17:00 28.12 Sunnudagur 12:00 - 17:00 29.12 Mánudagur LOKAÐ 30.12 Þriðjudagur 12:00 - 17:00 31.12 Gamlársdagur LOKAÐ 1.1 Nýarsdagur LOKAÐ 2.1 Föstudagur 12:00 - 17:00 Við þökkum ykkur fyrir ánægjulega samveru á árinu sem er að líða. Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Ævintýraleg jólasöguspjöld, föndur og óskalistasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur. Í desember bjóða Duus safnhús uppá notalega jólasamverustund, hægt er að föndra jólaskraut, skrifað óskalista til jólasveinanna og lesið um jólahefðir Duus húsa fyrr á tíðum. Henta öllum aldurshópum og góða leið til að kynnast jólum liðinna tíma og taka þátt í skapandi samveru.

Föstudaginn 24. október verður kvennaverkfall haldið um land allt. Samtök launafólks ásamt fjölmörgum öðrum baráttusamtökum kvenna og hinsegin fólks standa að deginum, en nú eru 50 ár liðin frá því að konur lögðu fyrst niður störf til þess að krefjast jafnréttis. Meginmarkmið kvennaverkfallsins er að störf kvenna og kvára séu metin að verðleikum, að kerfisbundnu launamisrétti verði útrýmt og að komið verði í veg fyrir kynbundið ofbeldi. Starfsfólk Duus safnahúsa tekur þátt í deginum og því verður lokað eftir hádegi föstudaginn 24. október.

Safnahelgi á Suðurnesjum sem haldin er árlega, er uppfull af skemmtilegum uppákomum og viðburðum um allan Reykjanesskagann. Safnahelgin er samstarfsverkefni safna, setra og sýninga á Suðurnesjum sem opna dyrnar sínar fyrir íbúum og gestum svæðisins. Dagskrá helgarinnar er fjölbreytt og skemmtileg fyrir alla fjölskylduna. Frítt er á öll söfn sem taka þátt. Nánar á www.safnahelgi.is Dagskrá Duus safnahúsa á Safnahelgi:

Í tilefni lýðheilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ bjóða Duus Safnahús öllum gestum ókeypis aðgang. Duus safnahús er frábær staður til að efla sköpunargleði og njóta rólegra stundar í fallegu umhverfi. Í Duus safnahúsum eru sýningasalir Byggðasafns Reykjanesbæjar, Listasafns Reykjanesbæjar og gestastofu Reykjaness jarðvangs og þar má á einum stað upplifa einstaka blöndu sögu, myndlistar og náttúru. Opnunartími: Þriðjudaga-sunnudaga kl: 12:00-17:00 Mánudaga: Lokað

Duus Safnahús fagnar frábærri Ljósanæturhelgi þar sem um 6.000 gestir sóttu sýningar og viðburði safnahúsanna. Helgin hófst á fimmtudagskvöldinu en þá opnuðu fjórar nýjar sýningar: Hulduefni eftir Vilhjálm Bergsson og Heimsmynd eftir Áka Guðna Gränz í Listasafni Reykjanesbæjar, Endurfundir eftir Rut Ingólfsdóttur í Gryfjunni og Ásta málari í Bíósalnum. Á laugardeginum fylltust húsin af tónlist, söng og fólki þegar „Syngjandi sveifla“ var á dagskrá en þar komu fram Harmonikuunnendur, Karlakór Keflavíkur, Sönghópur Suðurnesja og Kvennakór Suðurnesja með fjölbreytta tónlistardagskrá. Sunnudagurinn hófst á sögugöngu um Jamestown-strandið þar sem gestir fengu fræðandi erindi í Bíósalnum áður en haldið var í vettvangsferð um næsta nágrenni safnahúsanna Við þökkum öllum sem heimsóttu okkur yfir helgina og hlökkum til að sjá ykkur aftur.

Frá og með 1. september tók í gildi vetraropnunartímar í Duus safnahúsum. Söfnin eru nú opin þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 12:00–17:00, en lokað er á mánudögum. Gestir eru hvattir til að kynna sér fjölbreyttar sýningar safnahúsanna sem sameina listasafn, byggðasafn og Gestastofu Reykjaness jarðvangs.