
Grímur hófst handa við smíði líkananna um fimmtugt og safnaði af mikilli elju ýmis konar fróðleik um sögu sjávarútvegs á Íslandi. Grímur var afkastamikill og eftir hann liggja á fimmta hundrað líkön í eigu ýmissa stofnana og einstaklinga. Fyrir smíði sína var Grímur sæmdur hinni íslensku fálkaorðu árið 2009, Menningarverðlaun Reykjanesbæjar það sama ár og Sjómannadagsorðuna 2002. Grímur lést árið 2017.

Á sýningunni eru smáhlutir sem hafa verið framleiddir með ákveðið notagildi í huga. Þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu enda þeir oftar en ekki í ruslinu. Til eru þeir sem hafa þó einsett sér að safna slíkum hlutum með það markmið að eignast sem flesta og af mismunandi gerðum. Á sýningunni má sjá smáhluti sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar sem heildstæð einkasöfn eða hluti af öðrum gjöfum. Annað atriði sem þessir smáhlutir eiga sameiginlegt er að þeir voru fjöldaframleiddir á árum áður en eru margir fágætari í dag. Stór hluti er merktur fyrirtækjum eða vörum og enda voru þeir ýmist gefnir, látnir fylgja með öðrum vörum eða seldir vægu verði. Hér gefst því tækifæri til að rifja upp liðna tíð og virða fyrir sér hvernig myndskreytingar og vörumerki hafa breyst. Elstu munirnir eru frá þriðja áratug 20. aldar en þeir yngstu aðeins nokkurra ára eða áratuga gamlir.

