Duus Safnahús þakka gestum fyrir frábæra Ljósanæturhelgi
Duus Safnahús fagnar frábærri Ljósanæturhelgi þar sem um 6.000 gestir sóttu sýningar og viðburði safnahúsanna. Helgin hófst á fimmtudagskvöldinu en þá opnuðu fjórar nýjar sýningar: Hulduefni eftir Vilhjálm Bergsson og Heimsmynd eftir Áka Guðna Gränz í Listasafni Reykjanesbæjar, Endurfundir eftir Rut Ingólfsdóttur í Gryfjunni og Ásta málari í Bíósalnum.

Á laugardeginum fylltust húsin af tónlist, söng og fólki þegar „Syngjandi sveifla“ var á dagskrá en þar komu fram Harmonikuunnendur, Karlakór Keflavíkur, Sönghópur Suðurnesja og Kvennakór Suðurnesja með fjölbreytta tónlistardagskrá.

Sunnudagurinn hófst á sögugöngu um Jamestown-strandið þar sem gestir fengu fræðandi erindi í Bíósalnum áður en haldið var í vettvangsferð um næsta nágrenni safnahúsanna

Við þökkum öllum sem heimsóttu okkur yfir helgina og hlökkum til að sjá ykkur aftur. 

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
7. júní kl. 11:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026