Sjómannamessa

 7. júní kl. 11:00

Verið velkomin í Sjómannamessu.


Sjómannamessa verður haldin á vegum Njarðvíkursóknar á sjómannadaginn 7. júní kl. 11:00 í Bíósal Duus safnahúsa.

 

Félagar úr Kór Njarðvíkurkirkju leiða söng við undirleik Rafns Hlíðkvist organista og sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar. Að lokinni stund verður gengið að minnismerki sjómanna við Hafnargötu þar sem lagður verður blómakrans frá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Félagi skipstjórnarmanna.


Í boði verða kaffi og nýsteiktar kleinur í Duus safnahúsum  Einnig gefst gestum kostur á að skoða bátalíkön Gríms Karlssonar í Bryggjuhúsi ásamt öðrum sýningum safnahúsanna.

 

Allir sjómenn og fjölskyldur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin við messuna.

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026