Skráningarsýningar úr gjöf Aðalsteins Ingólfssonar
17. júní - 16. ágúst 2026
Í sumar gefst gestum einstakt tækifæri til að kynnast verkum úr veglegri gjöf Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings til safnsins. Gjöfin telur um 140 verk og markar mikilvægan áfanga í sögu Listasafns Reykjanesbæjar.
Sýningarnar veita innsýn í fjölbreytt verk eftir íslenskt listafólk og varpa jafnframt ljósi á það hvernig safneign verður til, þar sem verkin eru rannsökuð, skráð og gerð aðgengileg sem hluti af vaxandi safnkosti safnsins.
Jafnframt er sýningarröðin þakklætisvottur til Aðalsteins fyrir ómetanlegt framlag hans til Listasafns Reykjanesbæjar í nær tvo áratugi.

