Lifandi laugardagar í Duus safnahúsum
Komdu með fjölskylduna og taktu þátt í Lifandi laugardögum – skemmtilegri röð listasmiðja, vinnusmiðja, sögustunda eða annarra viðburða þar sem börn og fullorðnir skapa saman og njóta notalegrar stemningar í Duus safnahúsum. Smiðjurnar eru haldnar á völdum laugardögum frá kl. 13:00 - 14:00 og henta öllum aldri. Ókeypis aðgangur.


