Listamannaspjall: Tumi Magnússon

19. apríl kl. 14:00

Nú er síðasta vika sýningar Héðan þangað þaðan hingað eftir Tuma Magnússon, sem lýkur 19. apríl. Á síðasta sýningardegi, sunnudaginn 19. apríl, verður Tumi með listamannaspjall í safninu sem hefst klukkan 14:00.

Sýningin Héðan þangað þaðan hingað er sýningarstýrð af Gavin Morrison og kynnir verk myndlistarmannsins Tuma Magnússonar. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan.

Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í sýningnunni. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun.

Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
7. júní kl. 11:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026