50 ár frá fyrsta kvennaverkfallinu
Föstudagurinn 24. október
Föstudaginn 24. október verður kvennaverkfall haldið um land allt. Samtök launafólks ásamt fjölmörgum öðrum baráttusamtökum kvenna og hinsegin fólks standa að deginum, en nú eru 50 ár liðin frá því að konur lögðu fyrst niður störf til þess að krefjast jafnréttis.
Meginmarkmið kvennaverkfallsins er að störf kvenna og kvára séu metin að verðleikum, að kerfisbundnu launamisrétti verði útrýmt og að komið verði í veg fyrir kynbundið ofbeldi.
Meginmarkmið kvennaverkfallsins er að störf kvenna og kvára séu metin að verðleikum, að kerfisbundnu launamisrétti verði útrýmt og að komið verði í veg fyrir kynbundið ofbeldi.
Starfsfólk Duus safnahúsa tekur þátt í deginum og því verður lokað eftir hádegi föstudaginn 24. október.

