Áki Granz - samtal um list og minningar

Sunnudaginn 16. nóvember kl. 14:00

Samtal um sýningu Áka Granz – með Karveli Granz

Sunnudaginn 16. nóvember kl. 14:00 býður Listasafn Reykjanesbæjar til áhugaverðs viðburðar þar sem Karvel Granz segir frá sýningu föður síns, Áka Granz, og veitir gestum einstaka innsýn í hugarheim listamannsins.
Þetta er kærkomið tækifæri til að kynnast verkum Áka nánar og heyra sögur úr lífi og listsköpun hans frá syni hans sjálfum.

Aðgangur ókeypis – öll velkomin!
Komdu og njóttu hlýlegs samtals um list og líf.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
7. júní kl. 11:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026