Skapandi laugardagar með Freyju Eilíf

Nóvember í Listasafni Reykjanesbæjar

Alla laugardaga í nóvember kl. 13–14 býður listakonan Freyja Eilíf upp á fjölbreyttar og litríkar listsmiðjur fyrir börn í Listasafni Reykjanesbæjar. Efniviður á staðnum og frítt inn! 

Laugardagurinn 1. nóvember – Grímugerð í anda Dags hinna dauðu
Komdu og taktu þátt í skemmtilegri og litríka listsmiðju í grímugerð með listakonunni Freyju Eilíf, innblásinni af mexíkósku hátíðinni Degi hinna dauðu! 

 8. nóvember – Fljúgandi töfrateppið!
Föndrum töfrateppi með klippimyndaaðferð – hægt að leika með eða hengja upp á vegg! 

15. nóvember – Plánetur: Málarasmiðja
Við förum í skapandi geimferð í litum og formum! 

22. nóvember – Gluggastjörnur
Ljúf og ljómandi smiðja þar sem við búum til stjörnur til að hengja í glugga. 

29. nóvember – Jóla listsmiðja
Sköpun og jólaföndur í hátíðlegum anda! 
Komdu og njóttu skapandi laugardaga með Freyju Eilíf – þar sem ímyndunaraflið fær að fljúga frjálst! 
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
7. júní kl. 11:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026