Íslensk þjóðlög í gúmmístígvélum
Sunnudaginn 19. og 26. október kl 16:00
Bíósalurinn í Duus húsum fer að nötra sunnudaginn 19. október kl. 16:00.
Þar verður ekki kvikmynd á ferðinni heldur leiksýning, söngleikhús sem Hanna Dóra Sturludóttir leiðir með tali og tónum. Þannig er að Atli Ingólfsson hefur um ævina notað íslensk þjóðlög í ýmsa rétti, blásið í þau nýju lífi, endursagt eða misskilið á ýmsan hátt. Nú hefur hann tekið tólf útsetningar sínar og raðað saman í sérstakt samfellt verk, auk þess sem í miðjunni trónir hrollvekjandi draugasaga. Auk Hönnu Dóru flytja verkin sönghópurinn Kammeróperan og hljóðfæratríó, þær Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Gerður Gunnarsdóttir, fiðla, og Þuríður Jónsdóttir, flauta, en þær deila vangaveltum, hálfkæringi eða skætingi með Hönnu Dóru. Verkið er bæði broslegt og íhugult, ögrandi og huggandi. Sýningin heitir ÍSL#NSK ÞJÓÐLÖ G og er hluti af Óperudögum.

