Duus safnahús í vetrarfríinu

Dagskrá Duus safnahúsa í vetrarfríinu, 17. - 19. október.

Föstudagur: 
12:00 – 17:00 Eldfjallagarður í Gryfjunni: Sýning Reykjanes Geopark í Gryfjunni í Duus safnahúsum leiðir gesti í gegnum jarðsögu Reykjanesskaga með áherslu á eldgos, jarðhita og önnur sérkenni svæðisins. Við ætlum að taka innblástur úr sýningunni og búa saman til eldfjallagarð. Öllum er boðið að koma og föndra eða teikna eldfjall eða annað sem veitir innblástur af sýningu jarðvangsins. Allt efni verður á staðnum
12:00 – 17:00 Ratleikir í Byggðasafni Reykjanesbæjar: Á sýningum Byggðasafns Reykjanesbæjar í Duus safnahúsum eru ratleikir í boði fyrir alla aldurshópa.

Laugardagur: 
12:00 – 17:00
Ratleikir í Byggðasafni Reykjanesbæjar.
13:00 – 14:00 Haustlauf, listasmiðja barna. Opin listsmiðja fyrir alla aldurshópa barna, þar sem lauf eru teiknuð eða tekin í gegn með frottage aðferð. Allt efni verður á staðnum.

Sunnudagur: 
12:00 – 15:00 Eldfjallagarður í Gryfjunni & Ratleikir í Byggðasafni Reykjanesbæjar

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
7. júní kl. 11:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 3. júní 2026
30. maí – 16. ágúst 2026