30. maí – 16. ágúst 2026
Málverk Erlu Þórarinsdóttur byggja á samspili ljóss, efnis og tíma. Þau vísa til innri veruleika og eru einskonar teikn og tákn. Verkin eru í líkamsstærð og mæta áhorfandanum sem dyr eða speglar. Yfirborð þeirra eru breytileg eftir birtuskilyrðum og nærveru þess sem stendur fyrir framan þau. Blaðsilfrið sem Erla vinnur með, oxast og umbreytist með tímanum. Silfrið sem er ljós- og umhverfisnæmt bregst við súrefni, brennisteini og öðrum efnum sem eru í andrúmsloftinu. Verkin eru hlaðin orku og virkni sem áhorfandinn gæti upplifað. Orkan er abstrakt, óhlutbundin og býr í skynfærunum.
Að lifa og búa í öðrum löndum hefur haft áhrif á sýn og skilning Erlu. Hún flutti ung með fjölskyldunni til Norðurlanda og lærði snemma að heimurinn hefði mismunandi myndbirtingar, en kjarni mannsins væri sá sami. Hún leyfir undirvitundinni að starfa — hlustar, skynjar og treystir.
Litir búa yfir tíðni, og tíðni er líka orka. Guðfræðingurinn og höfundur bókarinnar Thought Forms, Annie Besant skrifaði: „Litur er birtingarmynd krafts”. Ómur litanna í verkum Erlu mætir auganu og smýgur inn í líkamann.
Geometrísk form birtast í endurtekningu og í kol- og blýantsverkum má sjá samfelldar línur og tákn sem virðast bæði skrásetja hreyfingu og halda henni gangandi. Inn í ferlið blandast orð og hugtök; skvaldur samtímans. Eins og spurningin Kärnkraft eller kärlek, „kjarnorka eða kærleikur“ ósvöruð og sífellt aðkallandi. Verkin draga inn í sig óstöðugleika heimsins, pólitíska spennu og mannlega viðkvæmni án þess að festa sig við einn ákveðinn atburð eða tíma. Þar mætast ógn og von, eyðileggingarmáttur og samkennd, sameining sála, Saman.
Járnteikningarnar og stálverkið Saman eru verk unnin og útfærð á þessu ári.
Í Kúríósa, innsta rými sýningarinnar eru skissubækur, ljósmyndir, skúlptúrar og teikningar sem varpa ljósi á feril Erlu til þessa. Safn tilrauna og sjónbrota frá ólíkum stöðum, tíðaranda og menningarheimum. Þar birtast vísbendingar um uppruna verkanna og innsæi listamannsins.
Erla Þórarinsdóttir er fædd í Reykjavík 1955. Hún nam við Konstfack Listaháskólann í Stokkhólmi og Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam. Erla hefur starfað á Norðurlöndunum, í New York um tíma og einnig dvalið í Kína. Hún á að baki fjölda einkasýninga og samsýninga á Íslandi og erlendis. Verk eftir Erlu eru í eigu helstu safna landsins. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir verkin sín, m.a. unnið samkeppni fyrir Ráðhús Reykjavíkur og hefur tvisvar hlotið styrki úr sjóði Pollock-Krasner Foundation í Bandaríkjunum.
Sýningarstjórar: Helga Þórsdóttir and Helena Solveigar Aðalsteinsbur.
Sýningin er styrkt af Safnasjóði.

